Aðgerðakerfi Laufsins
Kerfisbundnar aðgerðir byggðar á alþjóðlegum ESG stöðlum
Kerfið nýtir aðferðafræði sem mælir árangur fyrirtækja út frá umhverfislegum, félagslegum og stjórnarlegum þáttum. Við byggjum á þekkingu og viðmiðum frá Umhverfis- og orkustofnun og helstu alþjóðastofnunum sem setja ramma um ábyrg vinnubrögð, meðal annars SASB, GRI, UN Global Compact og Nasdaq ESG Guide.
Hafa sambandByggt á viðurkenndum alþjóðlegum stöðlum
Aðgerðakerfi Laufsins byggir á traustum grunni viðurkenndra alþjóðlegra staðla og samstarfsverkefna sem styðja við ábyrgan og árangursdrifinn rekstur.




Kerfið inniheldur yfir 120 aðgerðir í þremur ESG flokkum
Hver flokkur skiptist í undirflokka sem gera stjórnendum kleift að nálgast verkefnin á skipulegan og framkvæmanlegan hátt.
Markvissar umbætur í öllum þáttum rekstursins
Þessi uppbygging tryggir að fyrirtæki geti unnið markvisst að umbótum í öllum helstu þáttum rekstursins — allt frá auðlindanýtingu og starfsumhverfi til gagnsæis og stjórnarhátta.
Byggt á Grænum skrefum
Umhverfisaðgerðir Laufsins byggja á verkefninu Græn skref, sem veitir fyrirtækjum traustan ramma til að vinna að kerfisbundnum umbótum í umhverfismálum í daglegum rekstri.
Með þessum stöðlum að leiðarljósi hjálpar Laufið fyrirtækjum að innleiða aðgerðir sem hafa raunveruleg áhrif á rekstur, styrkja traust og bæta árangur til lengri tíma.
Byrjaðu sjálfbærnivegferðina í dag
Laufið hjálpar fyrirtækjum að innleiða sjálfbærni á skipulagðan og mælanlegan hátt. Hafðu samband og við sýnum þér hvernig.
Hafa samband