Sjáðu hvað gerist í hitakerfinu
Í samstarfi við Atomika · rauntímagögn · skiljanlegar niðurstöður
Orka sýnir notkun, kostnað og reikninga. Atomika sýnir hvað er að gerast inni í hitakerfinu — og frávikakerfi Laufsins tengir þetta saman og lætur réttu aðilana vita.
Hafa sambandSýnir notkun, kostnað og reikninga fyrir bygginguna.
Sýnir hvað er að gerast í hitakerfinu — rennsli, hita og nýtingu heita vatnsins.
Tengir gögnin saman, greinir frávik og lætur réttu aðilana vita.
Svona lítur ATOMIKA-greiningin út í Laufinu
Lykiltölur hitakerfisins, staða og frávik birtast á einum stað — ásamt yfirliti yfir notkun yfir valið tímabil.

ATOMIKA-greining í mælaborði Laufsins (demo-gögn).
Lykiltölur úr hitakerfinu á mannamáli
Atomika les rennsli, framrás, bakrás, hitamun og hitaálag. Laufið þýðir tæknigögnin yfir í skiljanlega stöðu — grænt, gult eða rautt — svo þú sérð strax hvort kerfið nýti heita vatnið vel.
Frávikakerfið lætur réttu aðilana vita
Þegar gögnin benda til óhagkvæmni — t.d. of há bakrás eða lítill hitamunur — býr Laufið til frávik með skýringu og ráðlagðri aðgerð. Tilkynningar berast í kerfinu, með tölvupósti eða SMS, líka til ytri tengiliða eins og þjónustuaðila.
Viltu sjá Atomika í Laufinu?
Við sýnum þér hvernig Atomika-greiningin og frávikakerfið vinna saman í rekstri byggingarinnar þinnar.
Hafa samband